Kata B. loggar
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Klukkan
19.11.2009 11:48:48 / keitycool

Veður.

Veðurfarið hérna á Akureyri sökkar:!:
Einn daginn er frost, hálka, snjór og snjókoma og svo þann næsta er allt í einu komin þýða, rigning og slabb, og jafnvel meiri enn meiri hálka meðan snjórinn sem náði að safnast upp á gangstéttunum og bílastæðunum er að fara. En eitt er samt nánast öruggt. Það er eiginlega alltaf vindur:| Sakna lognsins í firðinum fagra.
Ég get aldrei klætt mig í sömu útifötin 2 daga í röð vegna þess að veðrið er ekki eins tvo daga í röð. Í gær var dúnúlpa, húfa, vetlingar og kuldskór málið. Í dag hefði verið best að vera í stígvélum, og regngalla en ég var ekkert að pæla í veðrinu þegar ég fór út ,nema ég fór í strigaskó því að ég var að fara að keyra of heitt að vera í kuldaskóm, sem endaði með því að mér varð alltof heitt. Í gær var nefnilega 7 stiga frost. Í dag er 3 stiga hiti. Það er 10 gráðu munur á einum sólarhring góðir hálsar pælið í því.
Og til að toppa allt læt ég setja vetrardekkinn undir bílinn í fyrradag því ég var viss um að það væri að fara að koma langt kuldaskeið. EN NEI. Svo bara búmm þýða 3 stiga hiti og ekki hálkublettur á götunum lengur. Allur snjórinn sem var að byrja að koma mér í örlítið jólaskap farinn og núna er ekkert jólalegt lengur og alltof dimmt því að þótt snjór sökki gerir hann allt jólalegt og það verður miklu bjartara yfir á kvöldin.
Þannig að jebb þá er kvörtun minni yfir veðurfarinu hérna á Akureyri lokið. Best að fara að koma sér í að læra fyrir 40% próf:s Bara vika eftir að kennslu svo rúmlega vikufrí áður en fyrsta lokaprófið dynur yfir. 4 próf skráð í lokaprófsvikunni. Eitt sem gildir 20% og er bara úr hluta af námsefninu í SSÁ. Eitt 80% lokapróf úr öllu efninu í HSA. 50% lokapróf úr öllu efninu í ÞJF sem ég kvíði mest fyrir og 20% próf úr rökfræðinni í VIN sem ég er nett stressuð yfir því að ég skil ekki þessa rökfræðslu. Búin í prófum 15 svo heim í fjörðinn fagra 16 í jólafrí og vinnu:d PENINGAR VÚHÚ!
Peace out.

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.10.2009 09:31:12 / keitycool

Bloggið dautt.

Góðan daginn.
Það er orðin heil eilíf síðan ég bloggaði hérna seinast. Eða réttara sagt 5 mánuðir. Núna skal ég verða duglegri að blogga en facebook hefur eiginlega tekið yfir sem fréttaveita allra sem á annað borð nota netið. Spurning hvort að bloggið sé orðið alveg dautt. OK hvað er að frétta. Eftir að ég bloggaði seinast (19.maí) þá hefur þetta gerst. Í sumar vann ég og vann og vann eins og motherfucker í eldhúsinu á sjúkrahúsinu á Seyðisfirði. Kíkti nokkrum sinnum á djamm sem er ekkert til að tala um og fór 21. júní - 4.júlí fór ég til Ítalíu og Sviss á vegum Rauða Krossins sem var frábær lífsreynsla, lærði margt og mikið og  var geðveikislega gaman.
Svo kom ég heim og vann meira. Í ágúst pakkaði ég niður öllu dótinu mínu og hætti í vinnunni 16.ágúst. Þann 21.ágúst seinastliðinn fluttist ég svo út frá foreldrum mínum til Akureyrar og 26.ágúst byrjaði ég í Háskólanum á Akureyri og er að læra nútímafræði á hug- og félagsvísindaskori. Þetta er búin að vera mjög skemmtilegt nám hingað til, krefjandi og stundum mjög pirrandi. T.d. fyrir 2 vikum var námsleiðinn í svo miklu hámarki að mig langaði bara að fara aftur til mömmu og pabba en ég þraukaði. Hef líka kynnst slatta af hressu og skemmtulegu fólki sem er líka í námi í HA hefur bara ekkert verið erfitt að kynnast fólki hér á Ak. ekki eins erfitt allavega og fólk hélt fram.
Djammið er búið að vera mjög lítið en skemmtilegt þegar það hefur átt sér stað. Fór á Dalton ball með Sibbu frænku minni, svo var það sprellmót HA sem var freaking geðveikt og ball með Páli Óskari. Hef aðeins verið að Rauða Krossast hér á Ak og tók þarsíðustu helgi þátt í kynningaviku RKÍ. Fól í sér að spjalla við fólk niður á Glerártorgi og leika svo sjúkling.
Í seinustu viku endaði ég svo fyrir mikla tilviljun í því að byrja að æfa skylmingar sem er hluti af miðaldarklúbbi sem er hérna á Ak. og er hluti af alþjóðlegum klúbbi. Tók þátt í atburði um seinustu helgi á vegum þessa klúbb sem var æðislega gaman og ætla ég mér að taka vel og mikið þátt í þessum klúbb í framtíðinni.
Á morgun er stefnan síðan tekin suður þar sem að Á Flótta fer fram um helgina á Keilli og er ég núna að taka þátt sem leiðbeinandi sem verður bara gaman.
Já þá er því lokið gæti sagt frá öllu sem á daga mína hefur drifið undanfarna 5 mánuði í lengra máli en ætla bara að sleppa því. Það les þetta enginn hvort sem er.
C ya all.
Kata B.

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.05.2009 14:24:50 / keitycool

Long time no see

Vá ég er ekkert búin að blogga síðan í febrúar og nú hef ég margt að segja en segi það í stuttu máli.
OK byrjum á Rauða krossinum. Ég fór á Alviðru 20 - 22 febrúar og þar var ógeðslega gaman, við skyndihjálpuðumst og tókum baby shark svo oft að það hálfa væri meira en nóg.
Svo var landsmót URKÍ á Vík í Mýrdal 13-15 mars. Voru mörg góð námskeið þar og eins og alltaf er fólkið mesta skemmtunin það eru svo margir yndislegir karkaterar í Rauða krossinum og allir eru svo góðir vinir. Reyndar var ferðin á Vík í Mýrdal svolítil svaðilför. Við fórum ég, Aldís, Sædís og Magga og lögðum að stað eftir hádegi við vorum komnar um 9 leytið um kvöldið þar af tóku seinustu 30 km klukkutíma því að akkúrat þennan dag föstudaginn 13 (getur það verið nei...) kom geðveikur stormur á suðurlandi og við sáum varla handa okkar skil, hvað þá veginn frá Klaustri að Vík. Fólkið að sunnan festist á einhverjum sveitabæ hinummegin við fjallið sem er við Vík og komu ekki fyrr en á laugardagsmorguninn. Um kvöldið var svo tekið nett djamm á eina barnum á Vík og var það mjög gaman. Í það heila var þessi helgi æðislega skemmtileg.
Næst var það Landsfundur og árshátíð URKÍ helgina 24 -26 apríl. Fór ég suður á föstudeginum og vorum ég og Aldís saman í íbúð sem við leigðum frá AFL. Svo var aðalfundurinn á laugardeginum þar sem Pálína var kosin formaður stjórnar URKÍ og tók við að Jóni Þorsteini. Um kvöldið var árshátíðin og þar var Örn Árnason sjálfur Afi veislustjórinn. Þessa helgi var einnig farið á djammið í downtown RKV, verslað og farið í bíó. Mjög góð helgi.
Svo er það leiðbeinandanámskeið fyrir þá sem ætla að vera með Ungmennastarf á vegum rauða krossins um næstu helgi 22-23 maí og að lokum er það Ítalía frá 23-28 júní og Sviss frá 28 júní - 4 júlí. Þar tek ég þátt í 4 alþjóðlegu sumarbúðunum og einhverju sem heitir Youth on the Move þar verða málstofur og e-h og verða 4-5 ungmenni frá næstum öllum ungmennafélögum Rauða Krossins og Rauða Hálfmánans þar e-h um 500 manns og svo verður fleira fólk þar líka svo verða niðurstöðunar kynntar í Sviss. Ég segi betur frá þessu seinna en þetta er mjög spennandi og verður mjög gaman.
Annað í fréttum er að ég fékk loksins vinnu fyrir 2 mánuðum síðan og hef verið að vinna í eldhúsinu á sjúkrahúsinu á Seyðisfirði og gengur það mjög vel ég verð að vinna þar í 100% vinnu í allt sumar nema rétt á meðan ég skrepp til Ítalíu og Sviss.
Fór til Akureyrar í gær í dagsferð og verslaði af mér buxunar eyddi um 35000 kalli. Svo á ég afmæli á morgun en það verður ekkert djamm í þetta sinn því að ég er að fara að passa Markús á eftir í seinasta skiptið:cry: Því að svo er hann að fara að flytja með foreldrum sínum suður eftir ekki mánuð. Ég á eftir að sakna litla barnsins míns svo mikið því að mér finnst ég eiga jafn mikið í honum og mamma hans og pabbi. Ég hef verið að passa hann síðan að hann var bara nokkura mánaða.
Jæja þá segi ég þessu hundasundi yfir líf mitt undanfarna mánuði lokið. Endilega kommentið nú.
May the force be with you.
Kata B.

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.02.2009 13:28:41 / keitycool

Leiðbeinendanámskeið

Ákvað að blogga aðeins í tilefni dagsins.
Það helsta í fréttum er að ég fór um helgina á leiðbeinendanámskeið fyrir á Flótta en eins og kunnugir vita fór ég Á Flótta í Október sem var bara gaman og námskeiðið er semsagt til að læra að vera leiðbeinandi á þessum leik sem felur í sér að leika yfirvaldið á hverjum stað t.d. hermann á landamærum o.s.frv.
Við vorum um 15 manns á Alviðru og var mikið gaman og mikið lært. Setunar voru helst til langar stundum en þetta var mikið efni og lítill tími til að fara yfir allt. Maður kynnist helling af hressum krökkum og verður bara gaman að hitta þau aftur á næsta á Flótta.
Annað í fréttum er að eftir innan við 2 vikur er stefnan aftur tekin á Alviðru og þá á skyndihjálparnámskeiðið sem heitir Alviðra og stendur yfir helgina 20-22 febrúar. Gæti verið að ég verði fyrir sunnan í nokkra daga eftir það og hitti einhverja krakka eins og Auði Ösp og leiki við þá, jafnvel einhverja Húsó krakka. Hver veit? Það er bara spurning um hvar ég get þá gist??? Er einhver sem vill leyfa mér að gista í nokkra daga hjá sér? Einhver???
Ef svo er endilega látið mig vita.
En ég er að fara út að labba með Markús Smára núna svo að við heyrumst.
Ein skemmtileg setning af lokum að þessu sinni er vitnað í Jaws
"We are going to need a bigger boat!"
Lifið heil

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.01.2009 14:24:30 / keitycool

2009

Gleðilegt nýtt ár
Jæja fyrsta blogg ársins og hefði ekki mátt vera seinna þar sem að það er 23 janúar í dag.
Það er ósköp lítið að frétta. Er að vinna minna en ekki neitt þessa dagana þar sem að það koma greinilega ekki túristar til Seyðisfjarðar í janúar og ef þeir koma gista þeir greinilega ekki á Hótel Öldunni. Er ekki einu sinni viss um að ég sé lengur þjónn á Skaftafelli hef ekkert verið beðin um að koma að vinna og nenni ekki að hringja til að tékka á því hvort vinnuveitandanum vanti hjálp. Einfaldlega vegna þess að hann getur alveg hringt í mig ef honum vantar hjálp er með númerið mitt. Þannig að metnaður minn til vinnurnar er mjög mikill;)
Já líf mitt þessa dagna snýst um að hanga heima mest allan daginn í tölvunni, lesa Ísfólkið, horfa á Buffy the Vampire Slayer eða e-h annað á DVD eða sjónvarpið. Fer síðan annan hvern miðvikudag á Rauða kross fund á Egilsstöðum sem er það skemmtilegasta sem ég geri þessa dagana.
Er að fara á Þorrablót á morgun og fer svo suður með Rauða krossinum um næstu helgi á leiðbeinanda námskeið fyrir á Flótta. Fer svo aftur suður með RK á Alviðru 20-22 febrúar og fer svo suður á Vík í Mýrdal 13-15 mars enn og aftur með RK á landsmót. Það ætti allavegana að vera gaman og næstum ókeypis þar sem deildin borgar allar flugferðir undir rassinn á mér suður. Hefur ekkert betra að gera við peningana hvort sem er:lol:
Vinnan ætti að fara að aukast í febrúar því að þá fer ferjan að ganga aftur...nei nei nei...hún er ekki draugur. Það sem ég á við að hún fer aftur að fara að sigla eftir vetrardvala í Færeyjum. Hvað meira. Já fór í 50 ára afmæli hjá henni Röggu um seinustu helgi sem var alveg ágætt. Og er búin að vera að vesenast í því að fá atvinnuleysisbætur meðan að ég er að vinna svona lítið og fæ svona lítið af launum en það gengur alveg fáranlega illa. Vantar alltaf upplýsingar frá ME og Húsó sem að Vinnumálastofnun fær aldrei sama hversu oft ég hringi í skólana og bið um það en ætti vonandi að hafast núna. Verður að koma í gegn í næstu viku svo ég fái bætunar um næstu mánaðarmót. Annars verð ég svo illilega blönk.
Já ætla að hætta þessu tilgangslausa blaðri sem enginn les hvort sem er.
Ein góð tilvitnun úr Buffy the Vampire Slayer fyrst að lokum ég horfi svona mikið á það
núna:
Andrew: "You saw her. She's a truck-driving magic mama! And we've got maybe seconds before
Darth Rosenberg grinds everybody into Jawa burgers, and not one of you bunch has the Midi-chlorians to stop her." Helling af einhverjum Star Wars tilvitnunum sem ég fatta ekki en þetta er bara sjúklega fyndið atriði. Willow er s.s. orðin vond og ætlar að drepa þennan Andrew og Jonathan sem eru 2/3 af The Trio og hafa verið að bögga hana og restina af the Scobbies í nokkra mánuði. Er þegar búin að drepa Warren einn meðlim The Trio  með að húðfletta hann lifandi því að hann drap óvart Töru kærustuna hennar þegar hann ætlaði að drepa Buffy. En þar sem Andrew og Jonathan tengdust því ekkert eru Buffy og hinir Scobbies að vernda þá. Willow elti Andrew og Jonathan sem voru í löggubíl með Buffy og Xander á vörubíl sem hún stjórnaði með göldrum. Eftir að þau sleppa frá henni segir Andrew þessa setningu.
Allavegana nú er ég endalega hætt þessu blaðri og vinsamlegast hundsið þennan nördaskap í mér í lokin.
Sjáumst þótt síðar verði.
Lengi lifi Buffy the Vampire Slayer.

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2008 00:01:22 / keitycool

Facebook o.fl.

Ég lét loksins undan um daginn og fékk mér Facebook þannig að þið skuluð ekki segja að hópþrýstingur virki ekki. Hann gerir það nefnilega og ansi vel líka.
Annars er lítið að frétta. Kláraði Húsó 19 des. seinastliðinn og á eftir að sakna allra krakkanna þar geðveikt mikið stóð mig tiltölulega vel í náminu og var með 7,8 og 9 í öllum námsgreinunum sem er bara ágætis árangur fyrir manneskju sem kunni ekki að sauma eða elda neitt8)
Jólin voru mjög fín ég fékk ekkert voðalega margar en góðar jólagjafir og öll systkini mömmu voru hjá ömmu yfir jólin og eru þar reyndar enn. Báðir bræður mömmu eru fluttir hér á Seyðis sem er mjög fínt.
Ég fór einmitt á Laugardaginn með Rúnari og Bjarti (bræðrum mömmu) og Írisi systur mömmu á djammið ásamt Oddi (manni Írisar) og Hjördísi (konunni hans Bjarts). Það var heilmikið stuð og það besta var að ég þurfti ekki að borga nánast neina drykki sjálf. Einn frændi minn Sjonni og Hjördís buðu "litlu" frænku drykki:haha:
Svo eru það bara áramótin á morgun og mér finnst árið bara nýbyrjað veit ekki hvort ég fer út en það er DJ og e-h í Herðubreið eftir miðnætti á morgun. Gæti bara verið.
Annars eftir áramót er það bara að vinna eins og motherfucker og fara svo vonandi í HA í haust. Þarf einmitt að fara að sækja um fljótlega.
En svo ég ljúki þessu á formlegum nótum þá vil ég þakka ykkur fyrir árið sem er að líða og vonandi hittumst við sem oftast á nýju ári.

Lifði heil.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.11.2008 22:30:42 / keitycool

Ný vinna

Þetta er helst í fréttum.
Ég er orðin svo blönk að ég er komin með vinnu númer 2. Ég er farin að vinna á Bistró Skaftfell á Seyðisfirði sem þjónn var á fyrstu vaktinni minni fyrr í kvöld og það var svo lítið að gera að ég fékk að fara klukkan 8 sem var gott því að ég var að leka niður úr þreytu en líka vont því að það er minni peningur fyrir mig.
Ástæðan fyrir þreytunni var því miður ekki djamm heldur sú staðreynd að ég var í hinni vinnunni minni í morgun en það er ræstir á Hótel Öldunni og var ég að þrífa Herðubreið í 5 klukkutíma sem er án efa með skítugstu byggingum á landinu. Fékk eins og hálfs tíma pásu áður en ég fór að vinna í Skaftfelli.
Annað í fréttum er það að vegna áðurnefnda blankheita gat ég ekki farið í sumarbústaðinn með Rauðakrossinum um þessa helgi því að ég á ekki 2000 kall til að borga mat. Ef það eru ekki blankheit veit ég ekki hvað það er.
Þóra var hjá mér um seinustu helgi og tókum við nett djamm á föstudeginum þar sem við fórum að sofa hálf7 um morguninn og ætluðum að djamma á laugardeginum á Hótel Öldunni þar sem ég hélt að ætti að vera DJ en þá var bara einhver trúbador og meðalaldurinn þarna inni var svona 45 ára þannig að við gáfumst upp og fórum að sofa klukkan "bara" 3
Vá það er innan við mánuður eftir að skólanum langar ekki að hætta nenni ekki að vera bara að vinna eftir áramót:( plús það að ég á eftir að sakna krakkana þarna það eru allir orðnir svo góðir vinir.
Talandi um skólann það verður brjálað að gera í næstu viku. Jólahlaðborð á miðvikudaginn sem er boðið á ekki frjáls mæting í annars hefði foreldrar mínir örugglega komið.
Og hey já það mikilvægasta. Í gær kláraði ég að sauma buxur sem ég byrjaði á á mánudaginn og ég er springa úr monti. Á eftir að sauma kjól og pils. Einnig þarf ég að klára 4 verkefni í listmunagerð, svuntu og eitt verkefni í viðbót í útsaumi sem er mask of the night sem ég þarf að sauma og svo sauma út. Þarf virkilega að fara að spýta í lófana.
Talandi um að spýta í lófana ætla að halda áfram að læra. Hreinlætisfræðiverkefni here I come.
Hér er eitt fyrir Aldísi
So are you coming or going? Or coming and then going? Or comeing and then staying?
Love ya all bye:d
Ó já var að henda myndum inn á Picasa hjá mér. Comeing soon fleiri myndir úr Húsó eða Halloween í Húsó.

» 3 hafa sagt sína skoðun

02.11.2008 18:32:06 / keitycool

Surprise...surprise!!!

EH já. Það er bara þetta sama að frétta. Skóli. Heim um helgar. Vinna. E
ina nýja er það að það er plönuð sumarbústaðarferð á Einarsstaði um þarnæstu helgi með Rauðakross liðinu og svo varð ég fyrir því óvæntasta sem hefur komið fyrir mig í yfir ár í gær.
Það byrjaði þannig að Gulla mín hringdi í mig á miðvikudaginn mjög skrýtin og spurði hvort að ég ætlaði ekki heim um helgina. Ég ætlaði ekki að gera það þar sem að Hrekkjavökupartý var planað í Húsó á föstudaginn og ég ætlaði bara að vera uppfrá. Eftir smá samtal fékk hún mig til að koma heim á laugardaginn.
Um hrekkjavökupartíið var lítið að segja. Ég, Þóra og Elínborg ákváðum að stinga af inn á Egilsstaði en það var svo leiðinlegt þar að við komum aftur eftir aðeins klukkutímastopp á Egilsstöðum. Þegar við komum lærðum við það að við höfðum misst að mesta stuðinu. Það hafði varið dansað og farið í leiki og þar sem flestir höfðu verið vakandi síðan svona hálfátta um morguninn var farið að sofa rétt um eitt. Flestir dressuðu sig mjög flott upp. T.d. var Elínborg máluð eins og grasker í framan.
Allavega sofa...svo vaknaði ég um 11 á laugardeginum fékk mér morgunmat í skólanum og hélt heim á leið.
Þegar ég kom heim hafði ég samband við Gullu sem sagðist myndi hitta mig þegar hún væri búin í sturtu. Svo leið og beið og hún kallaði í mig eftir sturtu. Eins og góðri vinkonu sæmdi fór ég og náði í hana. Hún byrjaði að smsa einhverjum um leið og ég kom í bílinn. Bað mig að taka smá rúnt og svo færum við að ná í þetta óvænta. Ég keyrði einn stuttan hafnarhring. Svo sagði hún mér að fara upp Brekkugötu sem ég og gerði. Inn Múlaveg sem ég gerði líka og að lokum sagði hún.
"Farðu svo hérna niður hjá spítalanum." og eftir smá þögn "Og stoppaðu þarna og tökum Auði Ösp upp í bílinn!!!!" VÁÁÁÁ....hvað ég varð hissa. Þarna var Auður Ösp lifandi komin labbandi eftir götunni. Hún hafði þá verið heima á Seyðis síðan á þriðjudaginn og á landinu síðan á Sunnudaginn og ég hafði ekki haft hugmynd um það. Allaveg ég stökk út úr bílnum öskraði eins og hálfviti og knúsaði og kyssti Auði næstum til bana alveg eins og sæmir íslenskum hryðjuverkamanni. Svo kíktum við stöllunar þrjár í Kaupfó á Seyðis og kaupa smá drykki og aðrar vegar og fórum svo á rúnt *fórna höndum og heyrir svona hallelújah syngjandi kór í kringum sig* Alveg eins og ég er búin að þrá núna lengi lengi... *Lýt upp og segi takk fyrir*
En því miður ætlar Öspin mín ekki að stoppa lengi í landi kreppunar og hryðjuverka gegn Bretum. Henni hefur verið boðið að fara sem Au pair til Þýskalands og þar myndi hún fara í skóla og hún hefur verið að msnast við stelpu sem er Au par hjá vinafólki þessa fólks sem hún er hjá. + það að sú stelpa er í Au pair hóp þarna sem Auður kæmist þá í. Sem er náttúrulega mjög gott því að þá kynnist hún fólki öfugt við Frakkland og verður ekki bara e-h ein þegar hún er ekki að Au pairast.
En allavega þetta er það eina sem ég vildi deila með ykkur að sinni. Nú er bara um einn og hálfur mánuður eftir að Húsó og stóra spurningin í lífi mínu núna er...hvað á ég að vinna eftir áramót og fram að hausti þegar ég fer til Akureyrar og gerist háskólamær??? Vill allra helst í lengstu lög fá vinnu á Seyðis. En Egilsstaðir er ekki út úr myndinnni. Þannig að ef þú veist um vinnu á Seyðis eða Egils láttu mig þá vita.
Með fyrirfram þökk og við heyrumst fljótlega aftur góðir´hálsar.
Kata B.

I'm as broke as a joke:d En stundum er bara gaman að vera blankur. T.d. núna þarf ekki mikinn pening til að lifa.


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.10.2008 14:31:12 / keitycool

Söknuður

Nú er önnin í Húsó hálfnuð. Vá ó vá mér finnst ég vera nýkomin þarna og það er orðið styttra í að ég fari en veri. Nú er löng helgi og allir Húsó krakkarnir þurftu að fara af vistinni.
Það hefur ýmislegt gengið á þessa rúmlega tvo mánuði. Mestmegnis skemmtilegt en stundum ekki svo skemmtilegt og dramað þarna er alltaf ótrúlega hátt.
Þarna ber hæst að nefna: Dramað í kringum hugsanlegan draugagang sem by the way lét aftur bera á sér um seinustu helgi með banki á glugga...á annari hæð. Það getur enginn og leiddi þetta af sér að 4 manneskjur sváfu saman í einu herbergi á laugardagsnóttina.
Dramað í kringum andaglasið sem endaði í histeriu og að fólk sofnaði ekki fyrr en seint og síðarmeir.
Djammið sem ég tók með 4 af Húsó krökkunum. Annar eins þynnku laugardagur verður sjaldan endurtekinn.
Singstar 80's keppnin og dress uppið þar sem ein laglausasta manneskja veraldar (moi) endaði í 2 sæti.
Dramað þegar brunabjallan sem fór í gang fyrir rúmlega mánuði, fólk svo sofandi að það tók 10 mín að komast út og sumir voru mismikið klæddir, frá berfættum í stutta kjóla og bera að ofan (bara strákanir samt). Eins mikið af mygluðu fólki hefur sjálfsagt sjaldan setið við eitt morgunverðarborð. Að lokum yfirheyrslunar sem skólastjórinn hrinti af stað í framhaldi af því þar sem hann rakti garninar úr reikingarfólkinu en um sökudólginn komst ekki upp.
Gubbupestin sem lagði 3 manns og lét eina stelpuna fá vökvaskort þannig að það leið yfir hana og ykkar einlæg hringdi í panikki í 112 og sjúkrabíllinn kom en stelpuna þurfti ekki að leggja inn.
Stelpan sem var rekin fyrir að stelast á djammið með því að skríða út um gluggann.

Og meðan þetta hefur gegnið á í Húsó hefur heimurinn líka vera eitt stórt drama. Fjármálaheimurinn hrapaði hálfa leið til (S)hell, allir stóru fjarfeistingarbankar Íslands, Glitnir, Landsbankinn og Kaupþing fóru á hausinn og lánin hafa rokið upp úr öllu valdi (sem betur fer er ég ekki með lán) Gjaldeyrir er orðin svo dýr að það er varla þorandi úr landi lengur. Það eina jákvæða í þessu öllu er að bensínið hefur lækkað um næstum 15 krónur;)

Annars er það af frétta af mér að fyrir utan Húsó hef ég farið 1 sinnum í viðbót á almennilegt djamm og 2 smá djömm. Almennilega djammið fól í sér Mama Mia sing along og þetta er án vafa skemmtilegasta mynd sem ég hef séð.

Svo hef ég bara verið að fara heim um helgar að vinna, fyrir utan seinustu helgi þegar ég fór á flótta. Sem er hlutverkaleikur þar sem ég og um 30 krakkar í viðbót lékum flóttafólk frá Sómalíu. Í sólarhring seinastliðinn laugardag frá 13:00 til sunnudags til hádegis vorum við hlaupandi um Kjalarnesið eins og brjálæðingar, hoppandi út í kanta til að fela okkur fyrir "hernum" vorum "handtekinn" af "löggunni", sváfum á gólfum og möl og var líkt við kindur. "USS!!! Þig styggið féð!!!" Bara snilld og mæli innilega með þessu. Fyrstu dagana á eftir kanntu svo innilega að meta matinn þinn og rúmið þitt að það er alveg æði. Ég hef aldrei elskað rúmið mitt jafn innilega og þegar ég lagðist upp í það á sunnudagskveldinu.

En já yfirskriftin á þessu bloggi er söknuður. Ástæðan fyrir því að núna á  um 2 leytið á laugardegi er ég án djóks farin að sakna krakkana sem eru með mér í Húsó. Vegna þess að það er löng helgi hef ég ekki séð þá síðan um 1 leytið á fimmtudag. Það er ótrúlegt hversu vel maður getur kynnst hóp af fólki á rúmlega (og ekki fyrr en 26 þessa mánaðar) 2 mánuðum. Við búum saman, erum í skóla saman og virka daga höngum við yfirleitt saman öll kvöld. Þessi nálægð gerir það að verkum að maður er farin að þekka suma krakkana betur en maður getur ímyndað sér væri mögulegt. Það er komin einkahúmor innan hópsins sem er alveg ótrúlegur og við erum farin að vera svo opin hvort við annað. Maður knúsar einhvern þarna nánast daglega og þar sem ég er 3 elsta stelpan í hópnum má segja að maður sé komin í mömmuhlutverk fyrir sumar aðrar stelpunar. Ég tók mömmuhlutverkið alveg að mér á fimmtudaginn þegar ég lét eina stelpuna taka lyf og hún hefur beðið mig að minna sig á það framvegis. Ef það er ekki mömmuhlutverk veit ég ekki hvað það er.
En aðallega sakna ég hennar Þóru minnar, herbergisfélagans míns og ég er ekki að fara að sjá hana fyrr en eftir 8 daga. Hún fór suður og verður við skírn þessa helgi og afmælisveislu þessa helgi og ákvað bara að vera hjá ömmu sinni þessa viku þarna á milli. I miss you Þóra. Can you just come back tomorrow? Please?
Önnur manneskja sem ég sakna geðveikt og er ekki í Húsó er Auður Ösp vinkona mín. Eins og þið vitið er hún í Le France og ég er farin að þrá rúnt með henni og Gullu hinni vinkonu minni hér á Seyðis. Ég vil svo innilega heimsækja Auði eftir áramót, en eins og gengið er í augnablikinu efast ég um að fjárráðin leyfi það. En koma tímar, koma ráð. Ef einhver á pening þarna úti og hefur ekkert við hann að gera, þá máttu endilega gefa mér hann.
Sakna þín geðveikt Auður:cry: Farðu nú að koma inn á msn.:evil:

En já þá fer ég nú að segja þessu saknaðar/dramabloggi lokið. Um leið og fleira drama á sér stað í aðal dramaskóla landsins þá skal ég láta ykkur vita. Það væri hægt að gera sápuóperu úr öllu því drama sem hefur gerst þarna seinastliðnu 2 mánuði.

Yfir og út. Ég kveð. Með söknuði.
Munið nú að gefa álit.
Kata B.

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.09.2008 19:27:59 / keitycool

Kósý helgi

Húsó er geðveikt skemmtilegt. Án djóks ef þið hafið ekki farið í Húsó komið ykkur þá þangað strax. Þessar seinustu tvær vikur hafa eru án efa í topp 20 listanum yfir skemmtilegustu vikur lífs míns.
Þó er þessi skóli vissulega ekki fyrir alla. Ef þið fílið ekki strangan aga, langan skóladag og að sauma/elda þá skuluð þið alls ekki koma hingað. Aginn er samt bara strangur ef maður hlýðir ekki. En ég hlýði og því er þetta ekkert mál fyrir mig:haha: Það er svo gaman að vera að elda og saumaskapurinn er reyndar enn ekki skemmtilegur því að enn sem komið er erum við að læra að gera hluti eins og hnappagöt en þegar það lærist verður þetta bara gaman. Svo eru krakkarnir sem eru með mér hérna....ó vá þetta er bara svo æðislegt fólk og ég án djóks sakna þeirra þegar ég fer eitthvert. Í augnablikinu sit ég hér á Kirkjubæ og blogga og við erum bara 9 í húsinu. Eiginlega allir aðrir fóru á Akureyri og nokkrir fóru heim til sín.
Við 9 sem erum hér erum búin að hafa það svo kósý í dag. Reyndar var herbergisfélaginn minn veikur en 4 af stelpunum fóru í réttir og restin. Eða ég, Frikki, Helga og Rakel fórum á flakk á bílnum mínum. Fyrst fórum við á Skriðuklaustur en þar sem við komumst ekki inn vorum við e-h að flippa fyrir utna. Ég og Rakel rúlluðum okkur niður brekkur sem ég hef ekki gert síðan ég var svona 8 ára og vorum bara að fíflast helling sem var geðveikt gmana. Mér fannst ég vera barn aftur. Svo kíktum við á Guggu, Lilju, Hlín og Báru í réttinar þar sem að þær voru í óðaönn að draga kindur í dilka. Ég skellti mér inn í almenningin í og takið eftir þessu: Diesel gallabuxum, Kawasaki skóm og Sparkz peysu ég náði taki á 2 kindum en náði ekki að halda þeim:^) ó well gengur bara betur næst. Svo ákváðum við að hypja okkur og Lilja bættist í hópinn og við fórum upp á Kárahnjúkja. Hef ekki farið þarna í 3 ár og var því að sjá vatnið og stífluna fullgerða og allt þetta dæmi í fyrsta skipti. Það er svo geðveikt að keyra þarna um og skoða og að keyra yfir stífluna er bara flipp. Allir ættu að kíkja þarna við færitæki því að þetta er svo töff. Hvað sem varðar öllum umhverfisspjöllum eður ei..
Eftir að hafa virt Hnjúkana fyrir okkur fórum við aftur í Húsó og fengum okkur kökur. Svo fórum við inn á Egilsstaði og í stað Frikka var Bára litla komin með. Fórum við í Bónus og eyddi Rakel seinustu krónunum sínum í ís og ísssósu sem verður í eftirrétt þegar pizzan er búin að borðast. Takk Rakel XXX;)
Svo ætlum við að horfa á DVD í kveld... bara kósý.
En í gær maður!!! Shit hvað það var gaman pottþétt skemmtilegra en hjá Akureyrar förunum + að við þurfum ekki að dýla við neina þynnku. Við fórum í Singstar 80's keppni og ég varð í öðru sæti:d. Rakel vann. Það var svo gaman hjá okkur. Við borðuðum pasta í kvöldmatinn og svo dressuðum við okkur upp í mest 80's fötin okkar og sungum 80's lög fullum hálsi þangað til að sumir og flestir voru orðinir hásir. Svo þegar keppnin var búin fór slatti af fólki í Singstar -Pop hits.. Á morgun er verið að pæla í að fara á hestbak á Eyðar en veit ekki hvort ég nenni. Gamla settið er nefnilega að pæla í að heimsækja mig og langar að sýna þeim pleisið.
Svo var nett djamm í gangi seinustu helgi líka með Húsó liði sem endaði með því að ég fann hámark mitt hvað áfengi varðar (sem er ekki hátt). GG stuð en laugardagurinn var ekki eins skemmtilegur sem fór í að liggja þunnur upp í sófa á Nunnusetri og horfa á Friends.
En held að ég segi þetta gott í bili. Það fer að styttast í pizzu og ég er orðin ógeðslega svöng.
Þannig að við heyrmst og endilega segið mér álit ykkar þegar þið lesið þetta. Ég held að það lesi engin bloggið mitt.
Peace my homies.
Over and out.
Lengi lifi Húsó.
Kata B.

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.09.2008 19:10:52 / keitycool

Húsó 08

Þá er ég byrjuð í Hússtjórnarskólanum á Hallormsstað eða Húsó eins og hann er kallaður. Ég hef ekkert bloggað í allt sumar og hef frá litlu að segja. Fór suður í júní með familíunni í tvær vikur sem var mjög fínt. Skrapp á nákvæmlega 2 djömm í allt sumar sem voru fremur aumingjaleg sökum þreytu vegna of mikillar vinnu. Og svo bara vann ég í allt sumar til að safna mér penge sem gekk ágætlega. En núna er ég byrjuð í Húsó og ég ætla að reyna að blogga meira (ég lofa engu)
Fyrstu 2 vikunar í húsó hafa verið mjög góðar. Þetta eru skemmtilegustu krakkar sem eru með mér alveg frá aldrinum 15 ára upp í 28 ára. Flestir krakkarnir eru 16, 17 ára svo komum við 2 sem eru 20 ein 21 ein 19 ein 23 og einn strákur 28 ára. Í vikunni var ég og hópurinn minn hópur B í eldhúsinu og var ég að baka alla dagana. Ég leit líka út eins og hveitipoki þegar ég kom upp á herbergi á hverjum degi. Í næstu viku er það saumaskapur
Aðal dramað í skólanum þessar fyrstu vikur er meintur draugagangur en það hefur heyrst eins og fliss í lítilli stelpu inn á herberginu við hliðina á mínu. Einnig hefur stelpan sem er með mér á herbergi heyrt flissið. Spúkí8|. Herbergin heita bæjarnöfnum og er ég á Kirkjubæ en drauguinn dvelur á Reynisstöðum. Nokkrir krakkar fóru í andaglas í vikunni og þá varð ég hrædd ég var viss um að e-h slæmt myndir gerast og urðu þau að sögn vör við eitthvað. Vingjarlegan karldraug sem kallar sig Andri. Einnig hætti einn strákur í dag vegna einkamála og í gær reykti einhver í sturtunni en það er stranglega bannað að reykja í húsinu út af eldhættu, sú manneskja verður rekinn þegar kemst upp hver gerði þetta. EIn stelpan var sökuð um það og var næstum því rekinn á staðnum en það slapp.
Ég er einnig hætt í Kaupfélagi Héraðsbúa á Egilsstöðum og farin að vinna á Hótel Öldunni heima í firðinum fagra. Er einmitt að fara á 8 tíma vakt á morgun.
Við heyrumst sem fyrst krakkar mínir ég ætla að fara að gera eitthvað annað.
Ó og ég er komin með myndasíðu ætla að henda inn linkinum á hana snöggvast á eftir.
Passið ykkur á litlum flissandi stelpum.
Þangað til næst kveðja Kata B.

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.05.2008 18:14:30 / keitycool

Nýstúdent

Sit heima inn í herbergi þunn og ákvað að blogga smá.
Ferðin á Akureyri um seinustu helgi var rosalega skemmtileg og var 20 ára afmælisdagurinni og nóttin mín mjög vel heppnuð. Fyrir utan það að Elsa reyndi non stop að selja mig og Aldísi var mjög gaman. Reyndar var eitthvað mjög leiðinlegt teknó ógeðs DJ á Sjallanum og eftir að hafa eytt klukkutíma að hlusta á sama taktinn fórum við á Kaffi Akureyri sem var mun skemmtilegra og fórum að sofa svona að ganga hálfsjö á laugardagsmorgninum, svona með skemmtilegri djömmum sem ég hef farið á. Svo vöknuðum við tæmdum herbergið með trega þar sem okkur langaði mjög mikið á Pál Óskar á Sjallanum um kvöldið og svo fórum við að versla og á Greifann, Þar keypti ég mér einn besta mat sem ég hef smakkað. Piparmarenirað lambafille, með pönnusteiktu grænmeti, bakaðri karftöflu og rauðvínssósu mhmm... og svo gáfu Elsa og Aldís mér ís í eftirrétt sem var mjög óvænt og svo þurftu þær ekki að borga fyrir hann, var í boði hússins fyrst ég átti afmæli :)
Svo í gær gerðist það loksins loksins, ég og Aldís, ásamt 42 öðrum krökkum útskrifuðumst úr Menntaskólanum á Egilsstöðum og er ég því orðin stúdent:d Var athöfnin mjög fín fyrir utan eina leiðnlega ræðu og svo var svolítið vandræðalegt að hafa heilan sal af fólki standa upp fyrir manni. Ég vann verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í íslensku með meðaleinkunn 8,7 og félagfræðigreinum með meðaleinkunn 8,58:!: Fékk ég Sölku Völku eftir Halldór Laxness og bók sem heitir Íslensk félagsfræði í verðlaun.

Eftir útskrift var veisla heima hjá mér sem var fámenn en góðmenn og hef ég með 20 ára afmælinu mínu grætt 71.000 kall á rúmlega 2 vikum! Ekki slæmt. + Skartgripi, kertastjaka, kampavínsglas sem var brotið þegar ég opnaði pakkann, ætla að reyna að fá nýtt, og helling af blómum! Eftir að veislan og maturinn heima var haldið í sumarbústað á Úlfarsstöðum (sem er bara til hægri í stað þess að fara til vinstri á Einarsstöðum) þar sem að var nett og aftur fámennt en góðmennt fyrirpartý svo var farið á Dalton ball þar sem ég dansaði af mér lappinar og fékk mér piparmyntubailyes nammi nammi gott. Svo fórum við Aldís einar út í bústað þar sem að enginn nennti í eftirpartý. Þetta er svo lélegt djammlið sem ég þekki og við fórum að sofa á mjög tæmilegum tíma klukkan 4. Ekki alveg besta djamm sögunar en samt mjög skemmtilegt;) Hellti því miður smá niður á útskirftardragtina mína og þarf því að fara með hana í hreinsun.
En þetta er allt sem ég hef að segja í bili. Blogga aftur einhverntímann áður en ég fer suður. En fer suður 6.júní með fjölskyldunni og verð í 2 vikur. Verður örugglega alveg ágætt, ekkert djamm en mjög kósý8)
Jæja við heyrumst, eða sjáumst. Endilega kommentið, kommentið, kommentið.
Og að lokum!
Þetta var eins og týndi hlekkurinn í keðju sem að maður hafði ekki hugmynd um að væri slitin - Dexter Morgan


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 20:28:00 / keitycool

Dimmisjón

Jæja þá er þetta búið. Seinasta vikan í Menntaskólanum kláraðist fyrir rétt um 2 vikum síðan og seinast og eina prófið mitt var í sálfræði þann 6.maí seinastliðinn. Allir hinir áfanganir voru nefnilega próflausir:haha: Ég er búin að fá einkannir úr sálfræðinni og fékk ég 8, íþróttunum og fékk ég 10 RÚST...og svo í skólasókn fékk bara 8 þar vegna þess að ég var svo oft veðurtept,:whut:
En 30 apríl var ég að Dimmisjóna. Dagurinn byrjaði klukkan hálf 6 á því að það var búið að snjóa svo mikið að það var ófært á Egilsstöðum og þurfti ég að gjöra svo vel að labba frá Elsu og Björgvin niður í Menntaskóla í fremur vondu veðri. Mætti ég of seint í að vekja vistina en klæddi mig í búninginn, sem var hvítur málingarsamfestingurinn og löbbuðum við öll sem vorum að Dimmisjóna í e-h hús, man ekki nafnið, og þar var morgunmatur í boði foreldranna, þá kom Aldís loksins því að hún hafði fest sig og þurfti að byrja björgunar. Næst á eftir því var farið upp í skóla, hent snjóboltum í krakkana sem voru að koma í tíma og svo voru kennaranir kvaddir með viktum og gjöfum. Eftir það var hádegismatur og fórum ég og Aldís heim til hennar og lögðum okkur:^)
Eftir hádegishlé var farið í ratleik, sem var nánast drykkjuleikur á hlaupum um allan bæ, og í þessum leik DATT ÉG ONÍ SKURÐ. Hópurinn sem ég var í var að labba yfir tún, það var skurður og strákanir í hópnum ætluðu að hjálpa mér yfir og tók annar töskuna mína og fór yfir en hinn ætlaði að grípa mig en hann greip í vettlinginn minn, vettlingurinn rann af og PÚFF...ég datt oní skurð og meiddi mig í tánni og í rifbeinunum. Svo var farið í fleiri leiki. Svo var aftur hlé. Þá var pizzahlaðborð á Pizza 67 og að lokum var partý yfir í Fellabæ í trésmiðjunni. Ég var því miður nýbúinn að vera veik en hafði ,,hætt" að vera veik til að Dimmisjóna og var orðinn ansi slöpp klukkan 11 um kvöldið en þá hafði maður verið að djamma í um 17 tíma þannig að...ég fór heim til Elsu og Björgvins og fór að sofa með góðri samvisku, komin með smá hita.
Annars fer ég á Akureyri á morgun með Elsu og Aldísi og ætlum við að djamma og nákvæmlega á miðnætti ætla ég að fara á barinn og kaupa mér drykk. Vegna þess að þá verð ég 20 ára. Svo á laugardeginum ætlum við aftur hingað austur og þá fer ég í sumarbústaðinn til Gullu, Auðar, Sirrýar og einhverra fleiri...og þar verður vonandi taumlaust djamm, síðan á sunnudeginum kem ég heim og verð ein heima vegna þess að familiann verður farinn norður þaðan sem ég verð nýkomin. Ætla ég í bíó á Seyðis á sunnudagskvöldið á Juno sem að mamma er búin að sjá og segir að sé GG 13 góð (mín orð samt með GG 13 ekki hennar).
Núna er bara 9 dagar í útskriftina. Áðan var Írís frænka mín/systir mömmu og strákanir hennar að koma fljúgandi austur í stutta heimsókn og hún gaf mér afmælisgjöf/útskriftargjöf frá henni og bræðrum hennar og mömmu. Rosalega flott hálsmenn og eyrnalokka sett og æðislega gott ilmvatn. Ég ætla klárlega að vera með það á útskriftardaginn. Ég og Aldís erum farnar að bjóða fólki í partýíið sem verður á útskriftarkvöldið. Boðið er munnlegt þannig að ef ég eða Aldís tölum ekki við ykkur er ykkur EKKI boðið. Er talan komin upp í svona 8 manns + ég og Aldís. Vonandi mæta bara allir. Einmitt þetta sama kvöld eru úrslitin í Eurovision og ætla ég ekki að tala meir um það. Finnst Eurovision ekki skemmtilegt.
Anyhow þetta er allt sem ég vil sagt hafa í bili. Vona bara að þið hafið það sem allra best og munið ,,Sund er ekki íþrótt. Sund er aðferð til að halda manni frá því að drukkna. Þetta er bara almenn skynsemi" - George Carlin

If nobody's perfect then I'm nobody!

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.04.2008 15:59:49 / keitycool

Akureyri o.fl...

Hello, hello. Whass up?
Nei nei bara að djóka. Já ég er að blogga aðeins seinna en ég lofaði.
Það er bara búið að vera svo brjálað í lokasprettinum í skólanum að það hálfa væri meira en nóg. En nú er allt komið. Öllum verkefnum skilað og allt komið í stand. Nú er bara eftir eitt lokapróf í sálfræði 403 þann 6.maí næstkomandi og þá er ég búin:) Á miðvikudaginn er Dimmisjón sem verður örugglega gg gaman. Ætlum að byrja 6 um morguninn og svo verður djammað fram á næsta morgun s.s. sólarhrings djamm.
Fór á snjókross ball helgina áður (laugardaginn 12.apríl) en ég fór á Akureyri. Fór ég á djammið með Aldísi, Söru Kristínu, Ragnari og Sævari. Var bara fremur nett ball, ekki það allra skemmtilegasta sem ég hef verið á en heldur ekki það leiðinlegasta. Vikuna eftir fór ég á Akureyri ásamt familiunni og keypti mér útskriftarföt o.fl. Eyddi um 50.000 kall og var þar með blönk úúúppps:^) En það er í lagi. Ég meina hver þarf pening þegar hann á svarta pilsdragt og skartgripi8) og er nýbúin að sjá Superhero movie með litla bróður sínum Sem er fremur glötuð mynd en hann vildi fara og ég þurti ekki að borga þannig að...
Helgina eftir Akureyri var ég að vinna en fór samt á smá djamm, með Gullu, Sirrý og kærastanum hennar honum David. Auður Ösp var fyrir sunnan í sömu erindagjörðum og ég hafði verið fyrir norðan. Og í stuttu máli satt var það djamm alveg ágætt. Vil taka það fram (MAMMA) að ég var edrú báðar þessar helgar þar sem ég var driver. En gerði því miður sömu mistök og fyrir u.þ.b. einum og hálfum mánuði. En nenni ekki að æsa mig yfir því. Hann veit ekki af hverju hann er að missa. AND that's all you'll ever know. EF ég hef ekki sagt  ykkur þetta í eigin persónu.
 Fór líka á Reyðarfjörð á sunnudeginum þessa helgi og heimsótti ömmu mína og afa sem var mjög fínt hef ekki séð þau mjög lengi.
Já annað í fréttum er að þessari "blessuðu" London ferð hefur verið endanlega frestað. Vegna þess að bæði Sædís og Aldís eiga ekki peninga.:klikk: Í staðinn fer ég suður í viku og svo í sumarbústað í viku með fjölskyldunni. Ekkert alveg það skemmtilegasta í heimi en ætti að vera í lagi. Get þá allavega verslað slatta fyrir sunnan:$
Og talandi um sumarbústaði. Ég og Aldís erum búnar að taka sumarbústað á leigu á EInarsstöðum útskriftarhelgina (23- 25 maí) og ætlum við að hafa heiljarinnar útskriftar (fyrir okkur báðar) og 20 ára (fyrir mig) partý . Ætti það að vera mega stuð og boðskortin eru í póstinum. Helgina fyrir útskriftina eða 17.maí verð ég 20 og þá er mér vinsamlegast boðið í sumarbústað til Gullu, Auðar, Sirrý o.fl en þær ákváðu að taka sumarbústað þessa helgi saman og hafa það gaman og GLEYMDU að ég á afmæli þessa helgi. Helvítis beyglunar. En þær hafa beðið mig svo sætt afsökunar og boðið mér að koma í heimsókn og svoleiðis. Þannig að þetta er í lagi stelpur mínar ykkur er fyrirgefið.

Já þessi útskrift og eiga 20 ára afmæli sömu vikuna er nú meira málið. Það þarf að pæla í hlutum eins og fötunum, útskriftarboði (fyrir fjölskylduna), kaffisamsæti, barmblómum, stúdentshúfum, útskriftarpartýi (vininir), myndatökum, 20 ára afmælispartýíi o.fl o.fl. Þetta er geggjun.

Eftir að maí er búin verður mér óhætt að segja að ég hafi ALDREI djammað eins mikið og seinastliðna 2 og hálfa mánuðui, frá svona miðjum/enda mars til enda maí og Aldís hefur verið með mér í næstum öllum þessum djömmum. Laugardagurinn sem ég útskrifast verður t.d. þannig að ég þarf að vakna og hafa mig til fyrir útskriftina, keyra upp í Egilsstaði í útskriftina, svo verður myndataka og kaffisamsæti, svo keyra aftur heim þar sem að verður útskriftarboð þar sem að útvöldum er boðið, svo keyra aftur upp í Egilsstaði alla leið inn í Einarsstaði og fara í útskriftar/20 ára partýíið fram á morgun. Ég verð sofnuð svona 7 á sunnudagskvöldinu ég verð svo þreytt. Sver það.

EN allavega þetta er hvað hefur verið í gangi, er í gangi og verður í gangi, hjá mér á næstunni. Ætli ég bloggi ekki næst um Dimmisjónið og svoleiðis og svo verður reglulegt blogg fram að útskrift. ÉG ER AÐ ÚTSKRIFAST. Trúi því varla hlýt að vera að dreyma *klípur sig* ááááá´....nei þetta er raunverulegt.

En ég heyri í ykkur krakkar mínir. ADIOS


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 15:43:02 / keitycool

Já...sæælll....

Já sæælll. Það er er verða anskoti langt síðan að ég bloggaði seinast. Núna ætla ég að standa við það að vera duglegri að blogga. Lofa. *Setur tíu fingur upp til guðs*. Hvað er að frétta? Hvað er að frétta?
Já fyrst ber að nefna að plönin fyrir 2008 hafa breyst aðeins. Í stað þess að ég og Aldís séum að fara til Parísar, ætlum við ásamt Sædísi til London. Og DÍSES KRÆST að plana þessa ferð er búið að vera meira ævintýrið, tímasetningar hafa breyst út og suður, en núna er pottþétt komin endanlega tímasetning. Við ætlum út 28.júní og heim 7.júlí. En reyndar komum bara ég og Sædís heim þar sem Aldís er að fara út sem Au pair til Írlands 7.júlí og mun þá yfirgefa okkur á flugvellinum í London og taka aðra flugvél til Írlands. Þar mun hún dvelja á Isle of Man heitir eyjan. En já það er planið og verður klárlega gaman. Við erum reyndar ekki búnar að panta neitt:^) hóst hóst. Erum svolítið blankar nefnilega, en erum búnar að ákveða að við ætlum að gista á annaðhvort hosteli eða í leiguíbúð sem er....og haldið ykkur nú....gömul kirkja. Já þið heyrðuð rétt...gömul kirkja og litaþemað í henni er FJÓLUBLÁTT TAKK FYRIR.... okkur langar geðveikt að vera þar.
Næsta plan sem breyttist er það að Gulla mín kemur ekki með mér í Húsó. Hefur ekki efni á því og þar sem að Húsó kostar 175.000 er það aðeins fyrir utan hennar fjárhag. En ég held ótrauð áfram og ætla að sækja um fyrir 15.júní en þá rennur umsóknarfresturinn út.
Hummm....hvað meira.
Já.
Ég er að útskrifast þann 24.maí næstkomandi. Bara að verða stúdent, finnst ég verða nýbyrjuð. Og þar sem að foreldrar mínir elskunar, ætla að gefa mér flugfarið út til London (og til baka ætla ekki að láta mig stranda þar), verður bara lítil útskriftarveisla. Fyrir utan mig og foreldrana og systkinin verða 7 manns...þannig að ykkur er ekki boðið sorrý...en þið megið alveg koma í útskriftina sjálfa.
Svo er náttúrulega Dimmisjón þann 31. apríl næstkomandi, og það verður bara djamm og stuð, allir útskriftarnemendunir að djamma allsvakalega. Hlakka nett til þess...ætlum að vera í svona appelsínugulum deathrow búningum. Mjög svalt.
Annars verður sumarið bara vinna...vinna og vinna fyrir utan þetta ofangreinda... til að safna fyrir Húsó. Aldís er að yfirgefa mig sem au pair og Auður Ösp örugglega líka. Vil ekki að þær fari en það verður bara að hafa það. Get ekki haldið þeim á Klakanum ef þær vilja það ekki.
Annars hef ég lítið verið að gera undanfarið. Verið mikið að stússast í Rauða kross hópnum sem ég er í. M.a. Skyndhjálparferð á Alviðru sem var geðveikt skemmtileg, lítið sofið og óheilnæmar skammtar af nammi borðað það. En auðvitað líka lærð skyndihjálp. Svo var líka skyndihjálparnámskeið um þar seinustu helgi á Héraðinu og vorum við á því. Svo var fundur um seinustu helgi um Neyðarmóttöku nauðgana og í framhaldi af því var djamm, þar sem var farið í þann skemmtilegasta drykkjuleik sem ég hef kynnst...EVER (hef reyndar ekki farið í marga en samt) varð alveg allsvakalega full og þurfti að drekka ógeðsstaup sem var blanda af tópas og....vodka. ÓGEÐ mæli ekki með því.
Svo fórum við á Pepe's í fyrsta sinn sem ég fer þangað og ætlaði aldrei að komast inn. Gleymdi nefnilega skilríkjunum í vinnunni. Lít ég út fyrir að vera undir 18???? Einhver???
Annars er búið að vera lítið djamm, get reyndar bætt við þetta smá djammi á Lárunni í seinasta mánuði þar sem ég á víst að hafa gert ýmsilegt. (einhverjir hafa heyrt orðróminn) Vil taka það fram að það er ekki satt nema svona 5% af þessu. Eins og með allar slúðursögur. Já fór líka á Þorrablótsball á Egilsstöðum sem var nett gaman. Fyrir utan þetta hefur verið ekkert djamm. Mikið hangið samt með vinunum og mikið gaman...verið að spila...rúnta og svona bara eins og fólk geri.
Annars er í nánustu framtíð s.s. næstu viku verið að fara til Akureyrar með familiunni að stússast í ýmsu og m.a. að kaupa mér útskriftarföt. Hlakka gg til að eyða smá pening. Hef verið svo blönk undanfarið.

En...já....þetta er orðið gott í bili. I will see ya...when I see ya...

P.S. lofa að blogga fljótt. Um Akureyri næst.... eigi seinna en næsta föstudag.

Kata B.

Kommentið nú annars hætti ég að skrifa hér inn á og loka síðunni. Þetta er lokatilraun mín í að blogga. Kommentið eða ég loka og þetta er loforð ekki hótun:klikk:


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Dagsetning
9. febrúar 2010